Stiklað á stóruOddný Friðriksdóttir

Þegar þessar línur eru ritaðar þá er allt komið í rútínu hjá Madridar fjölskyldunni. Skólarnir eru allir byrjaðir af fullum krafti og ég (Oddný) er byrjuð að vinna....

Gísli og Heiða:
Litlu krúttin byrjuðu í skólanum um miðjan september. Skólinn þeirra heitir Siglo XXI og er hérna rétt hjá þar sem við búum. Við erum ofboðslega ánægð með skólann sem er lítill, vinalegur og persónulegur. Þau eru í stofu hlið við hlið, Heiða í 3-A  og Gísli í 5-B. Út september var dagurinn þeirra stuttur, eða frá 9.30 - 14.30 í október var svo byrjað af fullum krafti og er daguinn þeirra frá 9.30 - 16.30. Þau borða hádegismat í skólanum og taka siestu þar. Hádegismaturinn er ekki af verri endanum, þriggja rétta máltíð, hollt og flott. Í matartímanum fara kennararnir í pásu og við taka sérstakar "matarkonur". Þær sjá um að gefa börnunum að borða og halda utan um hvernig hver og einn krakki borðar, eftir matinn fara þær með krílin í hvíld og stærri krakkarnir fara flestir út að leika. Klst síðar koma svo kennararnir aftur og kennsla hefst.

Aðlögunin hjá krökkunum var frekar erfið. Þau grétu þegar við skildum þau eftir en skv. kennururnum þá grétu þau ekki mikið yfir daginn.. Held að þetta hafi reynt meira á okkur foreldrana en þau. Nú í dag fara þau alsæl í skólann og leika við krakkana. Þau eru eitthvað byrjuð að reyna að segja orð og orð en það kemur fljótt. Gísli Rúnar er farinn að skilja eitthvað og kennarinn hans hefur það á tilfinningunni að hann skilji mest af því sem hún segir.

Skólahaldið er mjög ólíkt því sem við eigum að kynnast á Íslandi. Við t.d. keyptum fyrir þau bæði fjöldann allan af kennslubókum, t.d. enskubækur, stærðfræðibækur, skriftarbækur o.s.frv. Svo fara þau í tónlistartíma, leikfimitíma, tölvutíma og enskutíma. Kennarinn hans Gísla heitir Carolína og er hún alveg yndisleg og í miklu uppáhaldi hjá Gísla. Kennarinn hennar Heiðu heitir Sara og er hún einnig alveg frábær. Þær tóku báðar ofboðslega vel á móti krökkunum og passa þau vel. Hinir krakkarnir hafa einnig tekið þeim mjög vel og foreldrar hinna barnanna taka þátt í því að sjá til þess að börnin skilji aðstæður Gísla og Heiðu og hafa útskýrt vel fyrir þeim af hverju þau tala ekki spænsku og þess háttar. Skólinn er það lítill að allir þekkja alla og vita hvernig málum er háttað. Starfsfólkið í skólanum er ofboðslega vinalegt og hjálplegt og hefur tekið okkur opnum örmum.

Sem sagt allt í gúddí fíling hjá litlu börnunum og við foreldrarnir himinlifandi með skólann. Framhaldið er spennandi hjá þeim, fullt af vettvangsferðum, bæði í leikhús, á söfn og piknik ferðir. Gaman verður svo að fylgjast með þegar orðaforðinn eykst hjá þeim og þau fara að reyna að babla á spænsku.

Set inn næsta fréttapakka á morgun eða hinn og á dagskránni er Sigurvin Freyr m.a.

Bestu kv. frá okkur af Avenida de Espana !!!

JæjaOddný Friðriksdóttir

Erum komin með internet.... reyndar fyrir löngu síðan. Jæja ætlum að fara að reyna að henda þessari síðu í gang aftur, sjáum til hvernig það gengur en allavega þá munum við notast við myndasíðuna hér í einhvern tíma.. Vorum að henda inn nokkrum myndum og ætlum að reyna að vera duglegri við það hér eftir !

Erum alveg ad fara ad fá internetid....Oddný Friðriksdóttir

Styttist í ad vid fáum almennilega internet-tengingu og ta byrjum vid aftur ad setja inn fréttir af okkur hér á síduna...

Erum búin ad opna aftur fyrir myndasíduna og um leid og vid fáum almennilega tengingu tá hendum vid inn myndum...

Bestu kv. frá Madrid, Oddný, Jói og kríli

Gullmolar frá krúttunum...Oddný Friðriksdóttir

Verð að skella þessu hér inn áður en ég gleymi því !!!!  Við skelltum okkur í svona túrista-bus í dag með krakkana og skemmtum okkur konunglega.. Eins og gefur að skilja þá hefur ýmislegt borið fyrir augu barnanna sem þau hafa ekki vanist á okkar yndislega landi.. M.a. þá finnst þeim skrýtið fólkið sem situr á götunum og betlar peninga og margir hverjir í slæmu ásigkomulagi.. Í þessari ferð okkar um Madrid í dag þá varð á vegi okkar maður sem sat á götunni og var að betla, á hann vantaði neðri hluti fótanna ca miðað við miðjan legginn.. þar klofnaði fóturinn í tvo litla parta... Heiðu alveg hreint dauðbrá þegar hún sá þetta og gat ekki leynt undrun sinni og glápti úr sér augun.. Gísli pældi aðeins minna í þessu en fannst þetta mjög undarlegt. Heiða talaði svo ekki um annað það sem eftir lifði dags og sagði alltaf reglulega (með ca 10 min millibili).. það vantar fótinn á kallinn !!  Ca fjórum tímum síðar þá skelltum við okkur í Metroið og vorum að fara heim, þegar við settumst á bakk að bíða eftir lestinni heyrist allt í einu í Heiðu "Það vantaði kallinn á fótinn".. hahaha sneri þessu öllu við, svo heyrist fljótlega í Gísla "Nei Heiða, hann var með kindafætur"... hahahah. Börnin þau eru svo saklaus og yndisleg !!!!

Gísli lenti líka í frekar fúlu atviki um daginn (en ferlega fyndnu samt). Við vorum að koma heim í íbúðina okkar og hann sat í kerrunni. Jói var að leita að lyklunum og parkeraði kerrunni fyrir framan dyrnar. Fyrir ofan dyrnar eru fullt af gluggum og fyrir þeim eru svona grindur. Á eina af þessum grindum ákvað ein dúfa að hvíla sig og gera stykkin sín í leiðinni með þeim afleiðingum að kúkurinn lenti beint á lærunum á Gísla og hann hreint út sagt trylltist... gargaði eins og brjálæðingur og lét öllum illum látum. Fólkið á götunni glápti á okkur og nam staðar, sjálfsagt að pæla í hvað amaði að greyið barninu.... Við stóðum þarna og áttum í mesta basli með að halda í okkur hlátrinum og það fór alveg ofboðslega í taugarnar á drengnum því honum fannst þetta sko ekkert fyndið !!! Það hjálpaði heldur ekki hvað hann er rosalega mikil pjattrófa, honum fannst þetta ógeðslega ógeðslegt greyinu og vill ekkert tala um þetta núna !!!

Alltaf nóg að gerast hjá okkur... höldum ykkur informed !

Update !Oddný Friðriksdóttir

Allt að gerast hér í Madrid... fjölskyldan búin að finna sér hús til að leigja í Las Rozas. Allir himinlifandi og hlakka mikið til að flytja. Erum alveg búin að finna það út að stórborgarlífið á ekki nægilega vel við okkur að svo stöddu, allavega ekki meðan börnin eru þetta lítil. Bærinn sem við flytjum í er hér í Norð-austur hluta Madridar og telur ca 70.000 manns. Hann er í ca 15 mín aksturs fjarlægð frá miðborginni. Bærinn er rólegur og tilvalinn fyrir fjölskyldufólk. Húsið okkar er staðsett innst inní botnlanga í götu sem heitir Avenida de Espana, það er á þremur hæðum og lítur vel út. Fólkið sem á íbúðina býr við hliðin á okkur en það eru hjón sem eru ca. 60 ára. Foreldrar konunnar áttu þetta hús og bjuggu þar en þau eru bæði látin núna og því ákvað konan að leigja húsið út því hún vill alls ekki selja það að svo stöddu !! Þetta er indælis fólk sem er tilbúið að aðstoða okkur með ýmislegt sem snýr að því að koma sér inní kerfið hér, m.a. hvað varðar skólamál krakkanna.... ekki slæmt að hafa fólk til að aðstoða sem þekkir svona vel til.

Annars þá höfum við það rosalega gott hér í Madrid, allir eru ánægðir og sælir. Við höfum haft ýmislegt fyrir stafni síðustu daga þá aðallega varðandi húsnæðis- og skólamál en höfum einnig fundið okkur tíma til að skemmta börnunum og okkur í leiðinni. Fundum yndislega sundlaugargarð hér í borginni með tveimur stórum laugum og busllaug fyrir krakka, þar voru einnig græn svæði til að slaka á og sóla sig og borða nesti. Þetta hentaði okkur mjög vel og krakkarnir skemmtu sér ofboðslega vel. Frekar gott að komast í vatnið og kæla sig niður. Jói ákvað svo að bregða sér á klósett sem hann áleit að væri þarna ofarlega í garðinum en kom hálf hvumsa til baka og tjáði mér að þarna væri þetta fína nektarsvæði og hann hafði nánast gengið beint framan á 60 ára gamlan spænskan krumpaðan naktan kall.... geri aðrir betur !! Talandi um nakta kalla en þá eru þeir í tugatali hér í íbúðinni á móti.... reynum að hugsa ekkert allt of mikið um það sem er að gerast þar hahahaha

Annars þá hlakkar okkur bara ofboðslega til að komast í húsið "okkar" og taka upp úr töskunum og hefja eðlilegt líf. Alltaf gott að vera í fríi en hið hefðbundna rútínu munstur hentar okkur alltaf best.

Höfum þetta ekki lengra í bili... over and out !

Ferðalagið hefst !!Oddný Friðriksdóttir

Jæja.... þá er kominn tími á að starta þessari síðu aftur !

Eins og flestir vita þá höfum við fjölskyldan lagt land undir fót og að þessu sinni varð Madrid fyrir valinu. Tilgangur ferðarinnar er með öllu mjög ólíkur þeim er við fórum til Alicante, því í staðinn fyrir að dingla sér allan daginn og slaka á þá munu fjölskyldumeðlimir sækja skóla og vinnu.

Ferðalagið hófst laugardaginn 24.júlí. Kl. 13.15 lögðum við af stað uppá Keflavíkurflugvöll og kvöddum fólkið okkar og land með tárin í augunum... Allt gekk vel á flugvellinum, nema kannski helv.. böggið í þessari gegnumlýsingu þar sem við þurftum að pakka uppúr heilli flugfreyjutösku sem var hvílíkt troðin að það hálfa væri nóg.. en með ótrúlegri seiglu náði ég (Oddný) að troða öllu draslinu aftur í Wink.  Börnin voru rosalega þæg í Leifsstöð og ofboðslega spennt með að fara í flugvélina. Flugferðin gekk einnig mjög vel og var fljót að líða, krakkarnir sátu eins og dúkkur í sætunum sínum og léku sér með leikföngin sem þau völdu sér í Fríhöfninni. Ekki mikið mál að ferðast með þessar elskur !! Við komum svo í hús hér í miðborg Madridar kl. rúmlega 23 og var lagst til hvílu... Við fullorðna fólkið lágum andvaka fram eftir nóttu hugsandi um hvað við værum nú búin að koma okkur í... en gleðin, bjartsýnin og ævintýraþráin tók fljótt völd og hugsanirnar breyttust í hvað við ættum nú mikið spennandi í vændum !!

Sunnudagurinn fór að mestu leyti í að kynna sér staðarhætti. Við skelltum okkur í gönguferð um bæinn og vorum fljót að sjá að það er varla hægt að vera meira miðsvæðis en við erum.... Við byrjuðum á þessu klassíska, kíkja í H&M (ekkert verslað samt nema sokkar á Gísla Rúnar) og borða á MacDonalds !!! Snemma farið að lúlla þennan daginn.... Mánudagurinn var svipaður, keypt í matinn þar sem allt var lokað á Sunnudeginum og rölt um borgina. Krakkarnir fóru í fyrsta skipti í Metro-ið og er óhætt að segja að þeim fannst það mjög skemmtilegt og spennandi. Í gær (þriðjudag) sóttum við svo bílaleigubílinn og keyrðum í Las Rozas þar sem við munum að öllum líkindum búa. Las Rozas er ca 75.000 manna bær í ca 20 mín fjarlægð frá Madrid. Okkur líst ofboðslega vel á þennan bæ sem er rólegur og fjölskylduvænn. Í dag byrjuðum við að skoða hús og höfum fundið eitt sem okkur líst vel á og vonandi munum við fá það leigt. (Skýrist á föstudaginn).

Íbúðin sem við erum í núna er mjög fín. Hún er að vísu lítið en dugar alveg svona til að byrja með.. Það sem er aftur á móti verra er að henni fylgir ekkert bílastæði og öll bílastæði og bílastæðahús hér í miðbænum eru gjaldskyld og því frekar dýrt fyrir okkur að parkera kagganum.... Þannig að ef þið ætlið til Madrid og vera í miðbænum þá þýðir ekkert að vera á bíl !!!!!

Krakkarnir hafa verið ótrúlega góð, dugleg og skemmtileg. Við pössum þau að sjálfsögðu ofboðslega vel og höfum þau alltaf með merki-armband um úlnliðinn. Heiða situr svo óluð niður í kerrunni og Gísli Rúnar er með band um hendina sem Jói heldur í. Það er sko eins gott að hafa þennan háttinn á því í fyrradag sáum við litla stúlku (ca 5 ára) standa grafkyrr alein á einni fjölförnustu götu miðbæjarins. Við stöldruðum við og fylgdumst með henni, hún labbaði svo af stað og fyrir horn og stoppaði aftur við ísbúð. Þar gaf ég mig á tal við spænska konu og bað hana um að spyrja hana hvort hún væri týnd.... stúlkan vildi ekki tala við hana og labbaði aftur þangað sem hún stóð áður.. við eltum og fylgdumst með aðeins lengur en enginn virtist skipta sér neitt af barninu.... venjulega eru löggur þarna á röltinu og mjög sjáanlegar en ekki í þetta skiptið.. við töluðum því við öryggisvörð í einni verslun og hann hóaði í lögguna sem kom stúlkunni til hjálpar... móðir stúlkunnar kom svo eftir ca. 10 min og leiddi hana í burtu..... ÚFFFFFF, hugsa sér að lenda í svona á þessari götu, hefði maður ekki farið í móðursýkina og hræðslukastið... Gísli Rúnar var vitni að þessu og vill nú alltaf vera með bandið um hendina svo hann týnist ekki eins og stúlkan....

Jæja læt þetta duga í bili... við ætlum að reyna að vera dugleg að setja hér inn fréttir... kemur í ljós hversu mikill nenningur verður til staðar Smile.   Hafið það gott og verið góð við hvort annað... Lífið er yndislegt !




Hellú hellú !!!Oddný Friðriksdóttir

Allt gott að frétta af okkur hér á Spáni.... Fullt búið að gerast hjá prinsessunni okkar, hún er farin að labba, byrjaði á því 25. júní daginn sem við héldum uppá afmælið hennar. Nú vill hún lítið sem ekkert skríða og labbar um allt eins og herforingi ekkert smá krúttaraleg. Hún er líka farin að hlæja mikið og kreistir uppúr sér mjög flottan gervi-hlátur við mörg tilefni. Það var hérna bresk kona um daginn og Heiða mátti bara ekki sjá þessa konu án þess að fá hláturskast, frekar fyndið...... Heiða er líka byrjuð að dansa á fullu og er það æðislega sætt, hún er farin að myndast við að segja orð og getur sagt, "mamma", "pabbi", og hún reyndi að segja "Gísli" um daginn. Annars þá bara er hún yndisleg, alltaf jafn skemmtileg og sæt, við fáum að heyra að hún sé "gordjös" oft á hverjum degi og erum við náttúrulega alveg sammála. Gísli Rúnar er hress að vanda, hættur að nota bleyju á daginn og er mjög stolltur af sér. Hann eykur alltaf við orðaforðann og notar orðið hin furðulegustu orð sem við höldum að hann nái úr teiknimyndum að mestu. Börnin hafa öll fengið smá vott af kvefi en enginn orðið lasinn sem betur fer. Hitinn hérna er orðinn svakalegur og nánast ólíft að vera úti seinni partinn. Búið að vera í kringum 35° undanfarið og ógeðslega heitt á nóttunni...... En við lifum það af og erum ánægð með lífið og tilveruna.

Mamma og pabbi komu 23. júni og var virkilega gaman að fá þau í heimsókn. Við mæðgurnar skelltum okkur til Murcia í verslunarferð og gerðum rosalega góð kaup..... Við vorum með rosalega góðar leiðbeiningar um hvernig ætti að komast til borgarinnar sem fengum frá snillingnum Árna Stefáns en hann gleymgi að láta okkur fá info um hvernig ætti að fara til baka og að sjálfsögðu villtumst við. Ég keyrði um í þó nokkurn tíma og leist nú ekkert á blikuna þegar ég kannaðist ekki við nein bæjarnöfn á skiltunum sem við keyrðum framhjá en þetta reddaðist svo allt að lokum og komum við heim ca klst á eftir áætlun...... Jói, Garðar, Benóný, Sivó og Friðrik Benóný skelltu sér svo til Benidorm í Terra Mitica tívolíið og skemmtu sér alveg konunglega. Jói sigraðist á lofthræðslunni og fór í nær öll tækin og Sigurvin Freyr var ekkert hræddur og fór í allt og vildi helst fara aftur og aftur. Mamma og pabbi fara svo á morgun og munum við sakna þeirra mikið..... En Gísli og Berglind mæta svo fljótlega og þá verður nú örugglega stuð.

Afmælið hennar Heiðu heppnaðist ekkert smá vel og var hún alsæl með að vera í sviðsljósinu. Hún var aftur á móti ekkert rosalega ánægð með afmælissönginn og þegar sungið var "hún er eins árs í dag" brotnaði hún saman og fór að hágráta.... Byrjar snemma að vera fúl með að eldast, alvöru skvísa.   Jæja hún kallar nú litla prinsessan, verð að rjúka, skrifa meira inn á morgun.

Kv. Odda og Jói

Oddný Friðriksdóttir

Það er nú kominn tími á nýja færslu ekki satt???

Eniháv... það er fullt búið að gerast hjá okkur undanfarið og búið að vera gestkvæmt. Fyrir það fyrsta þá átti draumabarnið og uppáhaldsstúlkan okkar hún Heiða afmæli í gær og ætlum við að halda afmælispartý á morgun. Við erum flutt úr húsinu sem við vorum í og búum nú hjá Árna Stefáns og Unni konunni hans á hótel Rotonda og erum við alsæl með þessa ákvörðun okkar. Krakkarnir eru búnir að eignast nýja "ömmu og afa" (Árna og Unni) og er óhætt að segja að það er dekrað við þau á alla kanta. Ragna Jenný og family eru búin að vera hjá okkur í tæpar tvær vikur en búa að vísu í eigin íbúð hér á hótelinu. Það er æði að hafa þau hérna og verður skrýtið þegar þau fara aftur. Benóný kom um leið og þau og mun hann verða hjá okkur í tvo mánuði, bara gaman. Mamma og pabbi komu svo í gær og verða í sextán daga. Þegar þau fara svo koma Gísli og Berglind fljótlega og stoppa í smá tíma, æðislegt ekkert smá æðislegt. Við erum enn alsæl með lífið og tilveruna og erum svo fegin að hafa kýlt á þetta dæmi. Það vottar ekki fyrir heimþrá og ef eitthvað er þá segir útþráin enn meira til sín en áður..... Hvar ætli við endum að ári???? vandi er um slíkt að spá.......

Við erum búin að kynnast fullt af fólki hérna sem er að sjálfsögðu misjafnt eins og það er margt.... Fólkið sem er í lobbýinu hérna á hótelinu er alveg yndislegt en í uppáhaldi er fólkið sem sér um matsöluna og barinn hérna niðri. Þetta er bresk fjölskylda sem við höfum kynnst vel og dekra þau við okkur á alla kanta. Þau ætla m.a. að halda uppá afmælið hennar Heiðu á morgun (enda er hún í miklu uppáhaldi hjá þeim) og búumst við við fullt af fólki sem ætlar að fagna með henni. Jibbí... Maðurinn sem á barinn heitir John og konan hans er Debby. Þau eiga son sem heitir Kalem og kærastan hans Jenný vinnur þarna líka í sumar, þau eiga einnig dóttir sem heitir Lauren og kærastinn hennar er Jay. Þetta er allt yndislegt fólk sem við erum glöð yfir að hafa kynnst.

Mér (Oddný ) gengur vel í skólanum. Fyrsta námskeiðið klárast í þessari viku og fer ég á annaði námskeið í þarnæstu viku. Bara gaman. Við ætlum svo að nota Ágúst í að ferðast um hérna nálægt og fara til Valencia og kannski Barcelona og svo bara eitthvað sem okkur dettur í hug.

Jæja þetta er komið fínt, við verðum duglegri að blogga núna, við lofum.

Hasta luego todos gente.

Nýjar myndirOddný Friðriksdóttir

Við erum búin að setja inn nýjar myndir og munum svo skrifa inn pistil í kvöld eða á morgun.

Kv frá Spáni Oddný, Jói og kríli

Moskító.......................Oddný Friðriksdóttir

Við hjónakornin höfum orðið fyrir barðinu á hinum stór skemmtilegu moskítóflugum og hafa þær gætt sér á leggjum okkar af bestu lyst. Afleiðingarnar fyrir okkur eru stórir rauðir blettir sem okkur klæjar viðbjóðslega í, ekki mjög þægilegt. En þar sem við erum að drepast úr jákvæðni yfir þessari blessuðu Spánarferð okkar þá erum við að vinna í því að gera gott úr þessu. Flest allt hefur jú sínar jákvæðu hliðar.

Annars þá höfum við það bara mjög gott, allir eru heilsuhraustir og glaðir. Ég er byrjuð í skólanum og er það bara fínt. Ágætis tilbreyting frá því að vera heima allan daginn með börnunum þó svo að það sé sannarlega næs. Við gerðum okkur verulega glaðan dag síðasta mánudag en þá brugðum við okkur niður í miðbæ Torrevieja. Búið var að opna alls konar sölutjöld og ríkti svona markaðstemming. Við röltum meðfram sjónum en þar var búið að útbúa litlar strendur út um allt, ógeðslega kósý og svo voru að sjálfsögðu fullt af kaffíhúsum og veitingahúsum sem við prufukeyrðum. Jói afrekaði að panta sér cervesa GRANDE og fannst mér með ólíkindum að hægt væri að hesthúsa öllum þessum bjór á innan við hálftíma............. Þetta var svona álíka og bjórinn frægi á Ítalíu (mamma, pabbi og Ragna Jenný vita um hvað er verið að tala). Við enduðum svo daginn í Tívolíi sem var nýbúið að opna við mikinn fögnuð barnanna. Sigurvin Freyr skemmti sér rosalega vel og fór í fullt af tækjum. En Gísli Rúnar stal senunni þegar hann skellti sér í klessubíla og fór hamförum, við vorum í hláturskasti þegar við horfðum á litla manninn keyra klessubíl og keyra á hina krakkana og glotta á meðan, hann var ekkert smá sætur. Sagði svo við okkur í dag að honum langaði aftur í tækin, "ég er svo rosalega flinkur í klessubílum" algjör dúlla. En strákarnir voru ekki einir um að fara í tæki því Heiða litla fór í fyrsta skipti í parísarhjól. Við ákváðum að skella okkur saman öll familían og var það rosalega gaman, Gísla fannst hann rosa rosa hátt uppi, Heiða skríkti og hló en Sigurvin fannst þetta nú frekar slow allt saman og tók töffarann á þetta......

Fórum síðast á ströndina á sunnudaginn og var það alveg yndislegt eins og alltaf, reynum að fara eitthvað í þessari viku en þetta er meira vesen nú þegar ég er byrjuð í skólanum. Lang best að fara snemma um morgun og vera til ca. fjögur, það er fínn tími fyrir þau minnstu því þau ná að sofa í einn og hálfan tíma á ströndinni og þá liggjum við Jói í leti með Sangríu í annarri og sólaráburð í hinni.......... Svo er nú líka algjör snilld hérna á ströndinni en það eru kallar og kellingar hérna frá einhverju Asíu-landi sem ganga á milli og bjóða nudd gegn greiðslu og oh my god þetta er ekkert slor, þau eru heil lengi að nudda og taka lítið fyrir. Þetta er ekkert smá sniðugt en að sjálfsögðu ólöglegt, þeir sem koma í heimsókn verða að prófa þetta.

Jæja látum þetta duga í bili, erum að horfa á Spán-Usa í sjónvarpinu. Hei já og svo byrjar EM-2008 um helgina.............. jíha er það  nú festen.

Adios amigos y bueno noche

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Myndaalbúm