Moskító.......................Oddný Friðriksdóttir

Við hjónakornin höfum orðið fyrir barðinu á hinum stór skemmtilegu moskítóflugum og hafa þær gætt sér á leggjum okkar af bestu lyst. Afleiðingarnar fyrir okkur eru stórir rauðir blettir sem okkur klæjar viðbjóðslega í, ekki mjög þægilegt. En þar sem við erum að drepast úr jákvæðni yfir þessari blessuðu Spánarferð okkar þá erum við að vinna í því að gera gott úr þessu. Flest allt hefur jú sínar jákvæðu hliðar.

Annars þá höfum við það bara mjög gott, allir eru heilsuhraustir og glaðir. Ég er byrjuð í skólanum og er það bara fínt. Ágætis tilbreyting frá því að vera heima allan daginn með börnunum þó svo að það sé sannarlega næs. Við gerðum okkur verulega glaðan dag síðasta mánudag en þá brugðum við okkur niður í miðbæ Torrevieja. Búið var að opna alls konar sölutjöld og ríkti svona markaðstemming. Við röltum meðfram sjónum en þar var búið að útbúa litlar strendur út um allt, ógeðslega kósý og svo voru að sjálfsögðu fullt af kaffíhúsum og veitingahúsum sem við prufukeyrðum. Jói afrekaði að panta sér cervesa GRANDE og fannst mér með ólíkindum að hægt væri að hesthúsa öllum þessum bjór á innan við hálftíma............. Þetta var svona álíka og bjórinn frægi á Ítalíu (mamma, pabbi og Ragna Jenný vita um hvað er verið að tala). Við enduðum svo daginn í Tívolíi sem var nýbúið að opna við mikinn fögnuð barnanna. Sigurvin Freyr skemmti sér rosalega vel og fór í fullt af tækjum. En Gísli Rúnar stal senunni þegar hann skellti sér í klessubíla og fór hamförum, við vorum í hláturskasti þegar við horfðum á litla manninn keyra klessubíl og keyra á hina krakkana og glotta á meðan, hann var ekkert smá sætur. Sagði svo við okkur í dag að honum langaði aftur í tækin, "ég er svo rosalega flinkur í klessubílum" algjör dúlla. En strákarnir voru ekki einir um að fara í tæki því Heiða litla fór í fyrsta skipti í parísarhjól. Við ákváðum að skella okkur saman öll familían og var það rosalega gaman, Gísla fannst hann rosa rosa hátt uppi, Heiða skríkti og hló en Sigurvin fannst þetta nú frekar slow allt saman og tók töffarann á þetta......

Fórum síðast á ströndina á sunnudaginn og var það alveg yndislegt eins og alltaf, reynum að fara eitthvað í þessari viku en þetta er meira vesen nú þegar ég er byrjuð í skólanum. Lang best að fara snemma um morgun og vera til ca. fjögur, það er fínn tími fyrir þau minnstu því þau ná að sofa í einn og hálfan tíma á ströndinni og þá liggjum við Jói í leti með Sangríu í annarri og sólaráburð í hinni.......... Svo er nú líka algjör snilld hérna á ströndinni en það eru kallar og kellingar hérna frá einhverju Asíu-landi sem ganga á milli og bjóða nudd gegn greiðslu og oh my god þetta er ekkert slor, þau eru heil lengi að nudda og taka lítið fyrir. Þetta er ekkert smá sniðugt en að sjálfsögðu ólöglegt, þeir sem koma í heimsókn verða að prófa þetta.

Jæja látum þetta duga í bili, erum að horfa á Spán-Usa í sjónvarpinu. Hei já og svo byrjar EM-2008 um helgina.............. jíha er það  nú festen.

Adios amigos y bueno noche

Athugasemdir

1
Ragna Jenný skrifar:
Nú styttist í að þið getið kysst næsheitin bless.... Við erum á leiðinni.... íha...... hahahaha...
05. júní 2008 klukkan 11:31
2
María Siggadóttir skrifar:
Sæl og blessuð öllsömul elsku sætu krúsidúllurnar mínar mikið er gott að þið skemmtið ykkur vel og allir eru hraustir,
það er jú heilsan sem er aðalatriðið í þessu lífi.
Jói hún Jóhanna amma þín á afmæli í dag 6 júní er 74 ára gömul ég hringdi í hana áðan og allt ágætt að frétta þaðan nema að ennþá
eru jarðskjálftar að hrella þau, síðast í gærkvöld um kl.19.00,þannig að þetta er nú ekki nærri því búið virðist vera.Hún hefði gaman að því
ef þú hefðir tíma til að hringja í hana í tilefni afmælisdagsins, það er að segja ef þú ert ekki bara búin að því.
Farið gætilega elskurnar mínar og gangi þér vel í skólanum Oddný mín,berið á ykkur og börnin góða sólarvörn og látið ekki spaunsku ofurnuddarana
nudda á ykkur göt þarna á ströndinni.
Bestu kveðjur
mamma / ammagull.
06. júní 2008 klukkan 14:29
3
Hrabbý skrifar:
Hola mi querida familia! Qué bien para ustedes están feliz el la playa... pero las moscas son horribles... no es bueno:(
Todavia yo estoy buscando trabajo.. qué peina..;p
Mil besos de Islandia para ustedes:*
Quero estar con ustedes ahora... me gusta el sol:)
06. júní 2008 klukkan 20:13

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Myndaalbúm