Oddný Friðriksdóttir

Það er nú kominn tími á nýja færslu ekki satt???

Eniháv... það er fullt búið að gerast hjá okkur undanfarið og búið að vera gestkvæmt. Fyrir það fyrsta þá átti draumabarnið og uppáhaldsstúlkan okkar hún Heiða afmæli í gær og ætlum við að halda afmælispartý á morgun. Við erum flutt úr húsinu sem við vorum í og búum nú hjá Árna Stefáns og Unni konunni hans á hótel Rotonda og erum við alsæl með þessa ákvörðun okkar. Krakkarnir eru búnir að eignast nýja "ömmu og afa" (Árna og Unni) og er óhætt að segja að það er dekrað við þau á alla kanta. Ragna Jenný og family eru búin að vera hjá okkur í tæpar tvær vikur en búa að vísu í eigin íbúð hér á hótelinu. Það er æði að hafa þau hérna og verður skrýtið þegar þau fara aftur. Benóný kom um leið og þau og mun hann verða hjá okkur í tvo mánuði, bara gaman. Mamma og pabbi komu svo í gær og verða í sextán daga. Þegar þau fara svo koma Gísli og Berglind fljótlega og stoppa í smá tíma, æðislegt ekkert smá æðislegt. Við erum enn alsæl með lífið og tilveruna og erum svo fegin að hafa kýlt á þetta dæmi. Það vottar ekki fyrir heimþrá og ef eitthvað er þá segir útþráin enn meira til sín en áður..... Hvar ætli við endum að ári???? vandi er um slíkt að spá.......

Við erum búin að kynnast fullt af fólki hérna sem er að sjálfsögðu misjafnt eins og það er margt.... Fólkið sem er í lobbýinu hérna á hótelinu er alveg yndislegt en í uppáhaldi er fólkið sem sér um matsöluna og barinn hérna niðri. Þetta er bresk fjölskylda sem við höfum kynnst vel og dekra þau við okkur á alla kanta. Þau ætla m.a. að halda uppá afmælið hennar Heiðu á morgun (enda er hún í miklu uppáhaldi hjá þeim) og búumst við við fullt af fólki sem ætlar að fagna með henni. Jibbí... Maðurinn sem á barinn heitir John og konan hans er Debby. Þau eiga son sem heitir Kalem og kærastan hans Jenný vinnur þarna líka í sumar, þau eiga einnig dóttir sem heitir Lauren og kærastinn hennar er Jay. Þetta er allt yndislegt fólk sem við erum glöð yfir að hafa kynnst.

Mér (Oddný ) gengur vel í skólanum. Fyrsta námskeiðið klárast í þessari viku og fer ég á annaði námskeið í þarnæstu viku. Bara gaman. Við ætlum svo að nota Ágúst í að ferðast um hérna nálægt og fara til Valencia og kannski Barcelona og svo bara eitthvað sem okkur dettur í hug.

Jæja þetta er komið fínt, við verðum duglegri að blogga núna, við lofum.

Hasta luego todos gente.

Athugasemdir

1
Árún skrifar:
Gaman að fá nýja færslu og sjá nokkrar myndir.
Gott að fer vel um ykkur.
kveðja frá DK
25. júní 2008 klukkan 06:09
2
Gummi afi skrifar:
Hæ elskurnar mikið er gaman að fá pistil frá ykkur ,maður var nú aðeins farinn að bíða eftir nýju bloggi sko og takk fyrir símtalið elsku Jói minn í gær.Ég samgleðst ykkur svo mikið að vera að gera skemmtilega hluti í lífinu ykkar,kannast aðeins við það að fara í smá útrás,en maður þarf samt að passa sig svolítið á því að láta ekki rótleysi ná tökum á sér þegar maður er mikið á ferð og flugi en karakter hvers og eins skiptir þar líka máli og ég veit að þið eruð heilsteiptir einstaklingar svo þetta verður allt í fína lagi hjá ykkur.......saludos de Islandia y bueno suerte para ustedes mi buena familia. Gummi
25. júní 2008 klukkan 22:09
3
Þórey skrifar:
Sæl elskan og takk fyrir síðast... hugsa oft til ykkar í sólinni og sælunni : )

En vildi bar skila kveðju og minna aðeins á mig : ) Bannað að gleyma mér...
02. júlí 2008 klukkan 15:00
4
Þórey skrifar:
Var að skoða myndirnar heheheh sá að þið eruð með útsýni af svölunum á rónann heheheheheehheeh bilast. Hann er alltaf þarna á stól. Við hraðbankann áhahahahah
03. júlí 2008 klukkan 15:40
5
Þórey skrifar:
Já og svona í lokin ekkert smá krúttlega myndir af krökkunum : ) Bara æði. Heiða er mega dúlla með þessa bleiku skuplu hehe
03. júlí 2008 klukkan 15:41

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Myndaalbúm