Hellú hellú !!!Oddný Friðriksdóttir
Allt gott að frétta af okkur hér á Spáni.... Fullt búið að gerast hjá prinsessunni okkar, hún er farin að labba, byrjaði á því 25. júní daginn sem við héldum uppá afmælið hennar. Nú vill hún lítið sem ekkert skríða og labbar um allt eins og herforingi ekkert smá krúttaraleg. Hún er líka farin að hlæja mikið og kreistir uppúr sér mjög flottan gervi-hlátur við mörg tilefni. Það var hérna bresk kona um daginn og Heiða mátti bara ekki sjá þessa konu án þess að fá hláturskast, frekar fyndið...... Heiða er líka byrjuð að dansa á fullu og er það æðislega sætt, hún er farin að myndast við að segja orð og getur sagt, "mamma", "pabbi", og hún reyndi að segja "Gísli" um daginn. Annars þá bara er hún yndisleg, alltaf jafn skemmtileg og sæt, við fáum að heyra að hún sé "gordjös" oft á hverjum degi og erum við náttúrulega alveg sammála. Gísli Rúnar er hress að vanda, hættur að nota bleyju á daginn og er mjög stolltur af sér. Hann eykur alltaf við orðaforðann og notar orðið hin furðulegustu orð sem við höldum að hann nái úr teiknimyndum að mestu. Börnin hafa öll fengið smá vott af kvefi en enginn orðið lasinn sem betur fer. Hitinn hérna er orðinn svakalegur og nánast ólíft að vera úti seinni partinn. Búið að vera í kringum 35° undanfarið og ógeðslega heitt á nóttunni...... En við lifum það af og erum ánægð með lífið og tilveruna.
Mamma og pabbi komu 23. júni og var virkilega gaman að fá þau í heimsókn. Við mæðgurnar skelltum okkur til Murcia í verslunarferð og gerðum rosalega góð kaup..... Við vorum með rosalega góðar leiðbeiningar um hvernig ætti að komast til borgarinnar sem fengum frá snillingnum Árna Stefáns en hann gleymgi að láta okkur fá info um hvernig ætti að fara til baka og að sjálfsögðu villtumst við. Ég keyrði um í þó nokkurn tíma og leist nú ekkert á blikuna þegar ég kannaðist ekki við nein bæjarnöfn á skiltunum sem við keyrðum framhjá en þetta reddaðist svo allt að lokum og komum við heim ca klst á eftir áætlun...... Jói, Garðar, Benóný, Sivó og Friðrik Benóný skelltu sér svo til Benidorm í Terra Mitica tívolíið og skemmtu sér alveg konunglega. Jói sigraðist á lofthræðslunni og fór í nær öll tækin og Sigurvin Freyr var ekkert hræddur og fór í allt og vildi helst fara aftur og aftur. Mamma og pabbi fara svo á morgun og munum við sakna þeirra mikið..... En Gísli og Berglind mæta svo fljótlega og þá verður nú örugglega stuð.
Afmælið hennar Heiðu heppnaðist ekkert smá vel og var hún alsæl með að vera í sviðsljósinu. Hún var aftur á móti ekkert rosalega ánægð með afmælissönginn og þegar sungið var "hún er eins árs í dag" brotnaði hún saman og fór að hágráta.... Byrjar snemma að vera fúl með að eldast, alvöru skvísa. Jæja hún kallar nú litla prinsessan, verð að rjúka, skrifa meira inn á morgun.
Kv. Odda og Jói
þar sem við komum til með að vera hjá ykkur í næstu vikur þegar Siggi verður 1 árs. Sigurgeir Sölvi er annars bara brattur. Er samt alls ekkert að drýfa sig að
hlutunum og hefur mest lítinn áhuga á því að labba. Held að hann eigi a.m.k. mánuð eftir í það. Annars fórum við í útilegu síðustu helgi, sú fyrst hjá þeim stutta
og var mikið fjör. Annars allir hressir hjá okkur, f. utan kvef og hósta sem Sigurgeir Sölvi virðist ekkert ætla að losna við. Hann er annars kominn með 4 tönnslur
og hrikalega sætur þegar hann brosir með nýju tennurnar. Við erum annars orðin rosa spennt að koma og Emilíana getur ekki beðið eftir að
leika við frændsystkini sín á ströndinni. Oh hvað verður gaman hjá okkur!
Heyrum í ykkur í vikunni.
Kærar kveðjur til allra frá okkur í Skipasundinu.