Ferðalagið hefst !!Oddný Friðriksdóttir

Jæja.... þá er kominn tími á að starta þessari síðu aftur !

Eins og flestir vita þá höfum við fjölskyldan lagt land undir fót og að þessu sinni varð Madrid fyrir valinu. Tilgangur ferðarinnar er með öllu mjög ólíkur þeim er við fórum til Alicante, því í staðinn fyrir að dingla sér allan daginn og slaka á þá munu fjölskyldumeðlimir sækja skóla og vinnu.

Ferðalagið hófst laugardaginn 24.júlí. Kl. 13.15 lögðum við af stað uppá Keflavíkurflugvöll og kvöddum fólkið okkar og land með tárin í augunum... Allt gekk vel á flugvellinum, nema kannski helv.. böggið í þessari gegnumlýsingu þar sem við þurftum að pakka uppúr heilli flugfreyjutösku sem var hvílíkt troðin að það hálfa væri nóg.. en með ótrúlegri seiglu náði ég (Oddný) að troða öllu draslinu aftur í Wink.  Börnin voru rosalega þæg í Leifsstöð og ofboðslega spennt með að fara í flugvélina. Flugferðin gekk einnig mjög vel og var fljót að líða, krakkarnir sátu eins og dúkkur í sætunum sínum og léku sér með leikföngin sem þau völdu sér í Fríhöfninni. Ekki mikið mál að ferðast með þessar elskur !! Við komum svo í hús hér í miðborg Madridar kl. rúmlega 23 og var lagst til hvílu... Við fullorðna fólkið lágum andvaka fram eftir nóttu hugsandi um hvað við værum nú búin að koma okkur í... en gleðin, bjartsýnin og ævintýraþráin tók fljótt völd og hugsanirnar breyttust í hvað við ættum nú mikið spennandi í vændum !!

Sunnudagurinn fór að mestu leyti í að kynna sér staðarhætti. Við skelltum okkur í gönguferð um bæinn og vorum fljót að sjá að það er varla hægt að vera meira miðsvæðis en við erum.... Við byrjuðum á þessu klassíska, kíkja í H&M (ekkert verslað samt nema sokkar á Gísla Rúnar) og borða á MacDonalds !!! Snemma farið að lúlla þennan daginn.... Mánudagurinn var svipaður, keypt í matinn þar sem allt var lokað á Sunnudeginum og rölt um borgina. Krakkarnir fóru í fyrsta skipti í Metro-ið og er óhætt að segja að þeim fannst það mjög skemmtilegt og spennandi. Í gær (þriðjudag) sóttum við svo bílaleigubílinn og keyrðum í Las Rozas þar sem við munum að öllum líkindum búa. Las Rozas er ca 75.000 manna bær í ca 20 mín fjarlægð frá Madrid. Okkur líst ofboðslega vel á þennan bæ sem er rólegur og fjölskylduvænn. Í dag byrjuðum við að skoða hús og höfum fundið eitt sem okkur líst vel á og vonandi munum við fá það leigt. (Skýrist á föstudaginn).

Íbúðin sem við erum í núna er mjög fín. Hún er að vísu lítið en dugar alveg svona til að byrja með.. Það sem er aftur á móti verra er að henni fylgir ekkert bílastæði og öll bílastæði og bílastæðahús hér í miðbænum eru gjaldskyld og því frekar dýrt fyrir okkur að parkera kagganum.... Þannig að ef þið ætlið til Madrid og vera í miðbænum þá þýðir ekkert að vera á bíl !!!!!

Krakkarnir hafa verið ótrúlega góð, dugleg og skemmtileg. Við pössum þau að sjálfsögðu ofboðslega vel og höfum þau alltaf með merki-armband um úlnliðinn. Heiða situr svo óluð niður í kerrunni og Gísli Rúnar er með band um hendina sem Jói heldur í. Það er sko eins gott að hafa þennan háttinn á því í fyrradag sáum við litla stúlku (ca 5 ára) standa grafkyrr alein á einni fjölförnustu götu miðbæjarins. Við stöldruðum við og fylgdumst með henni, hún labbaði svo af stað og fyrir horn og stoppaði aftur við ísbúð. Þar gaf ég mig á tal við spænska konu og bað hana um að spyrja hana hvort hún væri týnd.... stúlkan vildi ekki tala við hana og labbaði aftur þangað sem hún stóð áður.. við eltum og fylgdumst með aðeins lengur en enginn virtist skipta sér neitt af barninu.... venjulega eru löggur þarna á röltinu og mjög sjáanlegar en ekki í þetta skiptið.. við töluðum því við öryggisvörð í einni verslun og hann hóaði í lögguna sem kom stúlkunni til hjálpar... móðir stúlkunnar kom svo eftir ca. 10 min og leiddi hana í burtu..... ÚFFFFFF, hugsa sér að lenda í svona á þessari götu, hefði maður ekki farið í móðursýkina og hræðslukastið... Gísli Rúnar var vitni að þessu og vill nú alltaf vera með bandið um hendina svo hann týnist ekki eins og stúlkan....

Jæja læt þetta duga í bili... við ætlum að reyna að vera dugleg að setja hér inn fréttir... kemur í ljós hversu mikill nenningur verður til staðar Smile.   Hafið það gott og verið góð við hvort annað... Lífið er yndislegt !




Athugasemdir

1
Jórunn skrifar:
Heil og sæl

Bestu kveðjur til ykkar
Mun örugglega fylgjast með ykkur..
30. júlí 2010 klukkan 11:18
2
Þórey skrifar:
Vá spennó að fylgjast með ykkur hér : )
30. júlí 2010 klukkan 20:26
3
Árún skrifar:
Frábært að þið séuð búin að virkja bloggið aftur. Það verður gaman að fylgjast með ykkur og ævintýrum ykkar þarna úti :)
kv. frá DK
31. júlí 2010 klukkan 19:34

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Myndaalbúm