Update !Oddný Friðriksdóttir

Allt að gerast hér í Madrid... fjölskyldan búin að finna sér hús til að leigja í Las Rozas. Allir himinlifandi og hlakka mikið til að flytja. Erum alveg búin að finna það út að stórborgarlífið á ekki nægilega vel við okkur að svo stöddu, allavega ekki meðan börnin eru þetta lítil. Bærinn sem við flytjum í er hér í Norð-austur hluta Madridar og telur ca 70.000 manns. Hann er í ca 15 mín aksturs fjarlægð frá miðborginni. Bærinn er rólegur og tilvalinn fyrir fjölskyldufólk. Húsið okkar er staðsett innst inní botnlanga í götu sem heitir Avenida de Espana, það er á þremur hæðum og lítur vel út. Fólkið sem á íbúðina býr við hliðin á okkur en það eru hjón sem eru ca. 60 ára. Foreldrar konunnar áttu þetta hús og bjuggu þar en þau eru bæði látin núna og því ákvað konan að leigja húsið út því hún vill alls ekki selja það að svo stöddu !! Þetta er indælis fólk sem er tilbúið að aðstoða okkur með ýmislegt sem snýr að því að koma sér inní kerfið hér, m.a. hvað varðar skólamál krakkanna.... ekki slæmt að hafa fólk til að aðstoða sem þekkir svona vel til.

Annars þá höfum við það rosalega gott hér í Madrid, allir eru ánægðir og sælir. Við höfum haft ýmislegt fyrir stafni síðustu daga þá aðallega varðandi húsnæðis- og skólamál en höfum einnig fundið okkur tíma til að skemmta börnunum og okkur í leiðinni. Fundum yndislega sundlaugargarð hér í borginni með tveimur stórum laugum og busllaug fyrir krakka, þar voru einnig græn svæði til að slaka á og sóla sig og borða nesti. Þetta hentaði okkur mjög vel og krakkarnir skemmtu sér ofboðslega vel. Frekar gott að komast í vatnið og kæla sig niður. Jói ákvað svo að bregða sér á klósett sem hann áleit að væri þarna ofarlega í garðinum en kom hálf hvumsa til baka og tjáði mér að þarna væri þetta fína nektarsvæði og hann hafði nánast gengið beint framan á 60 ára gamlan spænskan krumpaðan naktan kall.... geri aðrir betur !! Talandi um nakta kalla en þá eru þeir í tugatali hér í íbúðinni á móti.... reynum að hugsa ekkert allt of mikið um það sem er að gerast þar hahahaha

Annars þá hlakkar okkur bara ofboðslega til að komast í húsið "okkar" og taka upp úr töskunum og hefja eðlilegt líf. Alltaf gott að vera í fríi en hið hefðbundna rútínu munstur hentar okkur alltaf best.

Höfum þetta ekki lengra í bili... over and out !

Athugasemdir

1
Árún skrifar:
Til lukku með að hafa fengið fína húsið.. ekki amalegt að fá svona fínt og stórt hús. og góðir nágrannar eru dýrmætir.. hvort sem þeir eru naktir eða í fötum er hins vegar annað mál hahaha..

Skil ykkur vel að vilja fara koma ykkur fyrir það er svo erfitt að búa í töskum svona lengi og já rútinan er alltaf best ;)

kveðja frá okkur í Hammel. knus og kram
04. ágúst 2010 klukkan 10:38

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Myndaalbúm