Gullmolar frá krúttunum...Oddný Friðriksdóttir
Verð að skella þessu hér inn áður en ég gleymi því !!!! Við skelltum okkur í svona túrista-bus í dag með krakkana og skemmtum okkur konunglega.. Eins og gefur að skilja þá hefur ýmislegt borið fyrir augu barnanna sem þau hafa ekki vanist á okkar yndislega landi.. M.a. þá finnst þeim skrýtið fólkið sem situr á götunum og betlar peninga og margir hverjir í slæmu ásigkomulagi.. Í þessari ferð okkar um Madrid í dag þá varð á vegi okkar maður sem sat á götunni og var að betla, á hann vantaði neðri hluti fótanna ca miðað við miðjan legginn.. þar klofnaði fóturinn í tvo litla parta... Heiðu alveg hreint dauðbrá þegar hún sá þetta og gat ekki leynt undrun sinni og glápti úr sér augun.. Gísli pældi aðeins minna í þessu en fannst þetta mjög undarlegt. Heiða talaði svo ekki um annað það sem eftir lifði dags og sagði alltaf reglulega (með ca 10 min millibili).. það vantar fótinn á kallinn !! Ca fjórum tímum síðar þá skelltum við okkur í Metroið og vorum að fara heim, þegar við settumst á bakk að bíða eftir lestinni heyrist allt í einu í Heiðu "Það vantaði kallinn á fótinn".. hahaha sneri þessu öllu við, svo heyrist fljótlega í Gísla "Nei Heiða, hann var með kindafætur"... hahahah. Börnin þau eru svo saklaus og yndisleg !!!!Gísli lenti líka í frekar fúlu atviki um daginn (en ferlega fyndnu samt). Við vorum að koma heim í íbúðina okkar og hann sat í kerrunni. Jói var að leita að lyklunum og parkeraði kerrunni fyrir framan dyrnar. Fyrir ofan dyrnar eru fullt af gluggum og fyrir þeim eru svona grindur. Á eina af þessum grindum ákvað ein dúfa að hvíla sig og gera stykkin sín í leiðinni með þeim afleiðingum að kúkurinn lenti beint á lærunum á Gísla og hann hreint út sagt trylltist... gargaði eins og brjálæðingur og lét öllum illum látum. Fólkið á götunni glápti á okkur og nam staðar, sjálfsagt að pæla í hvað amaði að greyið barninu.... Við stóðum þarna og áttum í mesta basli með að halda í okkur hlátrinum og það fór alveg ofboðslega í taugarnar á drengnum því honum fannst þetta sko ekkert fyndið !!! Það hjálpaði heldur ekki hvað hann er rosalega mikil pjattrófa, honum fannst þetta ógeðslega ógeðslegt greyinu og vill ekkert tala um þetta núna !!!
Alltaf nóg að gerast hjá okkur... höldum ykkur informed !
Athugasemdir
1
Ragna Jenný skrifar:
wahahahahahaha það vantaði kallinn á fótinn............... Fótur að betla.......... Já og grey Gísli... ;)
04. ágúst 2010 klukkan 23:36
2
Dóra skrifar:
Frábært hvað allt gengur vel, gaman að geta fylgst með ykkur hérna ;o)
Kveðja Dóra.
Kveðja Dóra.
04. ágúst 2010 klukkan 23:54