gott að heyra að allt gengur vel hjá ykkur. Hafið það sem allra best
kv. Júlía Elsa
Stiklađ á stóruOddný Friđriksdóttir
Þegar þessar línur eru ritaðar þá er allt komið í rútínu hjá Madridar fjölskyldunni. Skólarnir eru allir byrjaðir af fullum krafti og ég (Oddný) er byrjuð að vinna....Gísli og Heiða:
Litlu krúttin byrjuðu í skólanum um miðjan september. Skólinn þeirra heitir Siglo XXI og er hérna rétt hjá þar sem við búum. Við erum ofboðslega ánægð með skólann sem er lítill, vinalegur og persónulegur. Þau eru í stofu hlið við hlið, Heiða í 3-A og Gísli í 5-B. Út september var dagurinn þeirra stuttur, eða frá 9.30 - 14.30 í október var svo byrjað af fullum krafti og er daguinn þeirra frá 9.30 - 16.30. Þau borða hádegismat í skólanum og taka siestu þar. Hádegismaturinn er ekki af verri endanum, þriggja rétta máltíð, hollt og flott. Í matartímanum fara kennararnir í pásu og við taka sérstakar "matarkonur". Þær sjá um að gefa börnunum að borða og halda utan um hvernig hver og einn krakki borðar, eftir matinn fara þær með krílin í hvíld og stærri krakkarnir fara flestir út að leika. Klst síðar koma svo kennararnir aftur og kennsla hefst.
Aðlögunin hjá krökkunum var frekar erfið. Þau grétu þegar við skildum þau eftir en skv. kennururnum þá grétu þau ekki mikið yfir daginn.. Held að þetta hafi reynt meira á okkur foreldrana en þau. Nú í dag fara þau alsæl í skólann og leika við krakkana. Þau eru eitthvað byrjuð að reyna að segja orð og orð en það kemur fljótt. Gísli Rúnar er farinn að skilja eitthvað og kennarinn hans hefur það á tilfinningunni að hann skilji mest af því sem hún segir.
Skólahaldið er mjög ólíkt því sem við eigum að kynnast á Íslandi. Við t.d. keyptum fyrir þau bæði fjöldann allan af kennslubókum, t.d. enskubækur, stærðfræðibækur, skriftarbækur o.s.frv. Svo fara þau í tónlistartíma, leikfimitíma, tölvutíma og enskutíma. Kennarinn hans Gísla heitir Carolína og er hún alveg yndisleg og í miklu uppáhaldi hjá Gísla. Kennarinn hennar Heiðu heitir Sara og er hún einnig alveg frábær. Þær tóku báðar ofboðslega vel á móti krökkunum og passa þau vel. Hinir krakkarnir hafa einnig tekið þeim mjög vel og foreldrar hinna barnanna taka þátt í því að sjá til þess að börnin skilji aðstæður Gísla og Heiðu og hafa útskýrt vel fyrir þeim af hverju þau tala ekki spænsku og þess háttar. Skólinn er það lítill að allir þekkja alla og vita hvernig málum er háttað. Starfsfólkið í skólanum er ofboðslega vinalegt og hjálplegt og hefur tekið okkur opnum örmum.
Sem sagt allt í gúddí fíling hjá litlu börnunum og við foreldrarnir himinlifandi með skólann. Framhaldið er spennandi hjá þeim, fullt af vettvangsferðum, bæði í leikhús, á söfn og piknik ferðir. Gaman verður svo að fylgjast með þegar orðaforðinn eykst hjá þeim og þau fara að reyna að babla á spænsku.
Set inn næsta fréttapakka á morgun eða hinn og á dagskránni er Sigurvin Freyr m.a.
Bestu kv. frá okkur af Avenida de Espana !!!
Athugasemdir
2
Júlía Elsa skrifar:
08. desember 2010 klukkan 17:58
Bestu kveðjur frá gamla Fróni:*
Hrabbý