Uhm Spánn !!!!!!!!!!Oddný Friðriksdóttir
Já lífið er sannarlega ljúft hjá stór fjölskyldunni. Okkur líður æðislega vel hérna enda ekki annað hægt, veðrið er alltaf gott og við getum notið þess að vera saman án nokkurs stress. Gærdeginum var eytt á ströndinni og vorum við mætt kl 10 um morguninn með allt liðið. Við erum orðin rosalega flott í þessu, mætum með kælibox með smurðum samlokum, jógúrt, safa og gosi svo mannskapurinn verði nú ekki svangur, erum búin að kaupa sólhlíf fyrir litla fólkið (sem vill náttúrulega ekkert sitja undir henni) og erum bara að öðru leyti búin að græja okkur mjög vel upp fyrir ströndina. Krakkarnir fíla sig mjög vel á ströndinni og þá sérstaklega Sigurvin Freyr, honum finnst þetta æði og hangir í sjónum þar til hann er orðinn blár á vörunum, enda er hann farinn að taka heil mikinn lit drengurinn. Heiðu litlu finnst þetta strandarlíf einnig mjög spennandi og mokar eins og herforingi og skríður í sandinum í átt að sjónum og er hvergi bangin. Gísli Rúnar aftur á móti heldur sig til hlés og er ekkert alltof hrifinn af að fá sand í tásurnar en hann er nú samt allur að koma til.Í dag slepptum við ströndinni og vorum bara í rólegheitunum heima fyrir framan af degi. Skelltum okkur svo aðeins í búðir og eyddum svo seinni partinum í sundlaugar garðinum hér við húsið. Þar voru nokkrir krakkar að leika sér og spjölluðum við við Íra sem eiga hús hér rétt hjá. Þau bentu okkur á skemmtun sem verður hér á miðvikudaginn og ætlum við að kíkja á það.
Ég og Jói erum búin að fjárfesta í líkamsræktarkortum í Maxx gym sem er hér rétt hjá húsinu okkar. Þetta er hin fínasta líkamsræktarstöð og erum við mjög ánægð með að komast aðeins að hreyfa okkur. Maður svitnar alveg eins og rotta þarna og er það bara hið besta mál. Við lækkum nú meðal aldurinn töluvert með tilkomu okkar í Maxx gym því fyrir okkar tíma var hann ca 65 ár... hahahhaha, enda er maður hetja þarna, einu manneskjurnar sem hlaupa á brettunum en labba ekki. Það er ógðeslega mikið af gömlu liði hérna, það er bara staðreynd, og yfir vetrartímann er örugglega ekki að sjá ungt fólk hérna. En við fílum það, gamla fólkið rokkar feitt jejejeje
Jæja látum þetta duga í bili, ætlum að skella okkur á ströndina í fyrramálið ef veður leyfir ( held að það sé spáð rigningu nefnilega) og horfa svo á leikinn hér á netinu, áfram Ísland. Skilum kveðju til allra, hasta luego todos amigos...
VIÐ ERUM KOMIÐ MEÐ INTERNET..........Oddný Friðriksdóttir
Þeir voru sko ekki að slóra Spánverjarnir við að koma internet-tenginu á okkur, hafa greinilega fundið inná það hvað við vorum þurfandi........... En any how við erum komin með netið og getum því byrjað að blogga hér fyrir alvöru.Það hafa það allir rosalega gott hérna á Spáni og erum við alsæl með lífið og tilveruna. Við erum saman fjölskyldan öllum stundum og börnin hreinlega blómstra. Ströndin heillar mikið og er sú yngsta enginn aukvisi hvað það varðar, hún hreint elskar að vera í sjónum og mokar í sandnum eins og herforingi (ekkert smá krúttaralegt), aftur á móti er Gísli Rúnar ekki jafn hrifinn og finnst ferlegt að fá sand á milli tánna en venst því svo eftir hálftíma setu á handklæðinu, svo eftir næsta hálftíma fæst hann til að vaða út í sjó upp á hnjám og lengra hefur hann ekki komist. Sigurvin Freyr er búinn að kynnast strák hér sem heitir Fannar og leika þeir sér saman eiginlega allan daginn og er það bara frábært fyrir hann.
Við erum komin með símanúmer:
Heimasíminn er 00 34 965 3252 69
Jóa gemsi er 00 34 6863 610 45
Oddnýjar gemsi er 00 34 6863 246 43
Svo erum við líka með skypið (Jóhann Ingi Guðmundsson)
Jæja nóg í bili set inn fréttir hérna fljótlega. Adios..........
Hola Espania !!!Oddný Friðriksdóttir
Jæja þá erum við mætt til Spánar og okkur líður mjög vel. Ferðalagið gekk eins og í sögu, börnin sváfu hluta af ferðinni og hegðuðu sér þess á milli mjög vel. Húsið sem við erum í er mjög fínt, frekar lítið en góður garður og fínt pláss uppá þaki fyrir sólböð og annað slíkt. Nauðsynlegt er að hafa bíl á þeim stað sem við erum á og fengum við einn slíkan til umráða í dag (thank god). Ströndin sem er næst okkur er yndisleg, hún er lítil og er á milli tveggja kletta, eins konar vík. Fínt að vera með börnin þar (og Jóa, hann týnist ekki þarna, hahaha).Það er allt morandi í Bretum hérna og enska annað tungumál allra hérna. Enginn smá munur hér og á Barcelona þar sem enginn talaði ensku. Börnin eru svona að aðlagast hitanum smátt og smátt en Ragnheiður Jenný er lítið spennt fyrir honum. Gísli Rúnar er mjög brattur og ánægður með að hafa mömmu sína og pabba allan daginn og fær athygli eftir því. Sigurvin Freyr er í góðum gír en þarf að kynnast krökkunum hérna í hverfinu eitthvað, það er rosa fínn sundlaugargarður hérna og ætlum við að vera dugleg að nota hann og vonumst við að hann hitti krakka þar.
Jæja látum þetta duga í bili, fáum internet í fyrsta lagi eftir tvær vikur og verðum við þá dugleg að setja hér inn fréttir.
Kv. til allra frá Spánar liðinu.
Styttist í stuðiðOddný Friðriksdóttir
Við verðum nú að viðurkenna það við Jói að það kemst lítið annað að hjá okkur núna en pælingar um fyrirhugaða Spánarferð. Við erum orðin ógeðslega spennt og erum á rosalegu "planstigi" núna. Þ.e. plana að gera þetta og plana að gera hitt svo verður það örugglega þannig að maður gerir ekki neitt..... nei varla. Undanfarnir dagar hafa þó ekki verið sérstaklega frábærir því hún litla Heiða okkar er búin að vera voðalega ólík sjálfri sér. Hún hefur verið mjög vælin, sofið illa og haft litla matarlyst. Við fórum með hana til læknis sem sagði eiginlega beint út að hann vissi ekkert hvað væri að henni eftir að hann var búinn að skoða hana og hlusta á mig (Oddnýju). Hann sagði þó að hún gæti verið með einhvern vírus og því væri hún að öllum líkindum svona pirruð. Hann vildi ekki kenna tanntökunni um og var ég nokkuð sammála honum í þeim efnum, ég hef allavega ekki orðið vör við svona viðbrögð hjá strákunum þegar þeir tóku tennur. En hún er nú samt eitthvað skárri núna litla stúlkan og vonum við að þetta sé að taka enda. Benóný var hjá okkur um helgina og var rosalega gaman að fá hann í heimsókn og var Gísli Rúnar sérstaklega glaður, hann að vísu spurði mikið um ömmu og afa og furðaði sig á því af hverju þau væru ekki mætt með Benó, tengir þetta að sjálfsögðu saman. Benóný er kominn með æfingarakstursleyfi og keyrði því um allt eins og herforingi. Honum fannst sér ganga þrælvel svo lengi sem hann þurfti ekki mikið að stoppa eins og hann orðaði það, hahahaha, ég sagði honum að það væri nú frumskilyrði fyrir því að vera akandi í umferðinni að kunna að stoppa líka.....Jæja nú er íslenska deildin byrjuð af fullum krafti og fór ekkert smá skemmtilega af stað, nóg af mörkum og óvænt úrslit, bara gaman, vantar að vísu ÍBV en þeir verða með næsta sumar. Skrýtið manni finnst hálf erfitt að vera að fara út í sumar og missa af öllu stuðinu í kringum Landsbankadeildina, ég meina þetta er nú hálfgerður skítafótbolti, spörk út í loftið og "Óla Þórðar taktík, berjast strákar og hafa rétta hugarfarið, blablabla" en samt þá er eitthvað við þetta sem fær mann til að vera spenntur og manni finnst gaman að fylgjast með. Held að ég haldi með KR í sumar, fíla Loga í ræmur og svo er Atli Jó í KR, já ég er spennt fyrir KR og hef trú að því að þeir vinni þetta í sumar, gæti alveg trúað að FH skíti á sig (vona það) þeir skíta alltaf á sig með reglulegu millibili og það er kominn skitutími hjá þeim núna, muhahahahaha. Já svo þarf íBV að koma sér upp í deild þeirra bestu og byrjaði það vel hjá þeim því þeir unnu sinn fyrsta leik 2-0 á heimavelli, góð byrjun það, svo er bara að halda dampi og klára sumarið með fullt hús stiga.
Jæja við förum eftir fimm daga, gaman gaman gaman. Mamma og pabbi koma á morgun til að geta notið samvistum við okkur þessa síðustu daga, okkur hlakkar rosalega mikið til að fá þau og þá sérstaklega Gísla sem talar varla um annað en ömmu sína og afa þessa dagana. Hann fær alltaf reglulega svona ömmu og afa kast og vill þá alltaf vera að hringja í þau og svona, ef dyrabjallan hringir þá stekkur hann frá því sem hann var að gera og hleypur gólandi "amma Heiða, amma Heiða" í átt að dyrunum og verður alltaf jafn spældur þegar hann sér að þau eru ekki komin. Það er kannski ekki furða að hann er svona náinn þeim, hann var rosalega mikið hjá þeim þegar við bjuggum í Eyjum og þvældist um allt með afa sínum, þeir voru og eru miklir vinir og myndaðist nokkuð sterkt og sérstakt samband þeirra á milli. Börn eru líka svo rosalega næm og ég held að við fullorðna fólkið gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því hversu næm þau eru. Við sjáum það rosalega vel á okkar börnum í sambandi þeirra við Ömmu og afa í Eyjum, þau gefa sig rosalega mikið að krökkunum og sýna þeim alltaf mikinn áhuga, þau hringja reglulega og hafa komið til Reykjavíkur 2x í mánuði að meðaltali síðan við fluttum, börnin skynja þennan áhuga og dragast að þeim að sama skapi.Bara jákvætt því við höfðum áhyggjur að því að þau myndu verða feimin við þau vegna fjarlægðarinnar, fjarlægðin gerir fjöllinn blá, blablablablabla......
Já og hvað þýðir það, "fjarlægðin gerir fjöllin blá"? Ég veit alveg hvað er verið að meina, þið skiljið en samt asnalegt, það er kannski ekki öllum sem finnst blátt eitthvað frábært.... nöldur, nöldur, ætla að hætta núna áður en ég fer að bulla, fara bara að hugsa um Espania........... Over and out
Eyrnalokkar rúla !!!!!Oddný Friðriksdóttir
Litla prinsessan okkar fékk göt í eyrun fyrir þó nokkru síðan. Hún er á sínum ellefta mánuði og er því orðin nokkuð sjóuð í pæjustælum nú þegar. Athyglin sem litla dúkkan fær út á lokkana er ekkert smá, hvort sem það eru gamlar, hrukkóttar, ömmulegar og vinalegar konur, miðaldra töffarar með sítt hár og mótorhjólaskegg, ungir töffarar í díesel og með sítt að aftan eða bara venjulegt fólk eins og ég og þú. Allir eru jafn hrifnir af lokkunum og þegar fólk sér hana þá hallar það höfðinu til hliðar og segja ósköp blítt, " er hún komin með göt í eyrun, jiiiiiiiiiii hvað hún er mikil pæja" svo er brosað út að eyrum. Við erum alltaf jafn montin og ákaflega stollt af þessu framtaki okkar. Á Spáni þá eru stúlkubörn yfirleitt götuð á fæðingardeildinni og þá er lokkunum bara stungið beint í gegn um sneplana, ái ái. Hún sagði mér konan sem setti götin í Heiðu að þetta væri hægt að gera fyrstu þrjá mánuðina eða svo, eftir það þarf að nota byssu. Ég fann að vísu voðalega mikið til með lillunni okkar á meðan á þessu stóð og var alveg að fara að hætta við, en konan fullyrti að ef ég æltaði á annað borð að setja göt í eyrun á henni þá væri best að gera það strax því þegar þau eru svona lítil og svona miklir óvitar þá eru þau ekki að fikta í þessu með puttunum og í öðru lagi þá verða svona lítil börn ekki skítug ( undir eðlilegum kringumstæðum) og fá því ekki sýkingu. Jæja bla bla bla bla um eyrnalokka en það er bara svo gaman að eignast loksins stúlku að ég er að tapa mér, látið mig ekki byrja á kjólakaupunum það jaðrar við geðveiki, muhahahahaha.Eitt enn með eyrnalokka, þegar ég fékk eyrnalokka þá voru það verðlaun fyrir að fara til tannlæknis, jíha fín verðlaun. Ef ég ætti að fá svipuð verðlaun núna fyrir að fara til tannlæknis, hvað ætti það að verða??? Spurning með bótox, silicon og gervihaus..............Já eða bara nýjar tennur sem skemmast ekki, shitturinn erfitt að velja....
Nú byrjar ballið.............Oddný Friðriksdóttir
Jæja nú er kominn tími til að starta þessari síðu fyrir alvöru. Eins og glöggir lesendur ( sem eru nú örugglega nokkuð margir, miðað við dugnað greinahöfunds) hafa áttað sig á þá hefur prufu-ferlið tekið nokkuð langan tíma, en allt stendur þetta nú til bóta.Fjölskyldan heldur senn til Spánar til að dvelja þar sumarlangt. Áætlaður brottfaradagur er laugardagurinn 17. maí og því nákvæmlega 1 vika og sex dagar eða 13 dagar þangað til. Við erum að sjálfsögðu orðin spennt en kvíðum því jafnframt að vera svo lengi frá ættingjum og vinum. Tilgangurinn með þessum flutningi okkar yfir sumartímann er fyrst og fremst að prufa eitthvað nýtt, er þetta eitthvað sem við gætum séð fyrir okkur að gera aftur eða bara svona once in a lifetime deal?? Ég (Oddný) ætla að nýta ferðina og skella mér í spænskunám og reyna að ná betri tökum á því fína tungumáli, getur eflaust nýst mér í leik og starfi í framtíðinni. Við munum fá marga góða gesti í heimsókn sem er frábært og hver veit nema cervesa smökkunarferð verði farin í kjörbúðina endrum og eins.....
Við munum reyna að vera dugleg við að setja hér inn myndir og fréttir svo fjölskyldur okkar og vinir geti fylgst með okkur á Spáni og öfundað okkur af góða veðrinu, muhahahahahaha.
En að öðru, mikið er nú gaman að vera svona heimavinnandi, hefði aldrei trúað að þetta myndi gefa mér svona mikið. Ég tók nánast ekkert fæðingarorlof þegar ég fæddi Gísla Rúnar og hef því samanburð, segi því óhikað við alla " ekki sleppa því að taka fæðingarorlof, hafið það eins langt og þið getið og njótið hverrar mínútu." Þó svo að þetta sé geðveik vinna með þrjá krakka (fjóra að kallinum meðtöldum) þá trúi ég því að fjölskyldan og þá sérstaklega börnin búi að þessu að eilífu. Ég get gefið þeim allan minn tíma og dúllað mér með þeim endalaust, frábært alveg frábært.
Svo verðum við að koma hamingjuóskum til Hauka hér á framfæri, þeir lönduðu Íslandsmeistaratitli í handbolta fyrir nokkrum vikum og erum við að sjálsögðu stollt af okkar mönnum (þ.e. Gísla stóra frænda, Arnari Péturs, Gunnari Berg og Kára Kristjáni, annars er ég nú alls engin Hauka manneskja....). Þrefalt húrra fyrir þeim, HÚRRA, HÚRRA OG HÚRRA..........
Jæja nóg í bili, látum hér inn fréttir reglulega Adios.
Rusl og aftur rusl !!!!!!!!!!!!Oddný Friðriksdóttir
Jæja, kannski er kominn tími á að starta þessari bloggsíðu ef maður ætlar sér á annað borð að hafa bloggsíðu. Málin standa þannig að ég get ekki bloggað á bloggar.is á Makkann okkar og þess vegna hef ég ekkert verið að blogga neitt en þegar Jói byrjaði að kenna í Hraunvallaskóla þá fékk hann nýja hp tölvu frá skólanum og bloggið virkar sko á henni. Búin að útskýra þetta merkilega mál.Annars þá langar mig að hafa fyrstu færsluna um mjög svo mikilvægt mál sem snertir sannarlega við öllum og getur haft mikil áhrif á daglega líðan fólks. Það er nefnilega sorp !!!!! Nú langar mig að biðja þá sem eru búsettir í Hafnarfirði (þ.e. ef einhver les þessa síðu) að commenta á hversu oft ruslið er tekið hjá þeim. Ég held í alvöru að ruslið sé bara tekið einu sinni í mánuði hérna hjá okkur. Við erum að verða geðveik á þessu, vægast sagt GEÐVEIK. Þetta er ekki alveg að virka hjá fimm manna fjölskyldu með tvö bleyjubörn. Hugsið ykkur girnilegt, tvö bleyjubörn, það er mikill kúkur í bleyju þar á ferðinni með tilheyrandi lykt og ógeði. Við erum alltaf með svarta ruslapoka hér á svölunum því tunnan fyllist á ca. tveimur dögum hjá okkur og nú standa málin þannig að við erum með tvo stútfulla poka. Þetta er ógeðslegt og óþolandi og ég er alvarlega að spá í að hringja í bæinn og kvarta undan þessu, ég borga jú sorphirðugjald. Hirðið þá sorpið bæjarhrúgurnar ykkar, það er nú ekki til mikils ætlast !!
Annars er bara chill og fínerí hérna á Berjavöllunum. Verið að horfa á síðustu umferð í Landsbankadeildinni. Go Valur !!!! Er svona að velta fyrir mér hvernig ég að hafa þessa síðu og yfir höfuð hvort ég eigi að vera með svona síðu !!!! Ég spái í þessu og læt mér detta eitthvað sniðugt í hug !!